Íslendingar fundu vel fyrir skjálftanum á Filipseyjum Heimir Már Pétursson skrifar 15. október 2013 13:33 Skjálftinn var mjög öflugur, eða 7,2 á richter-kvarðanum. mynd/afp
Ekkert amar að hópi Íslendinga sem er nálægt skjálftasvæðunum á Filipseyjum þar sem óttast er að hátt í eitthundrað manns hafi farist í öflum jarðskjálfta í nótt. Skjálftinn var mjög öflugur eða 7,2 og reið yfir á miðnætti að íslenskum tíma, eða átta að morgni í dag að þeirra tíma. Tala látinna fer vaxandi og nú er staðfest að 93 hafi farist, en björgunarmenn eru enn að leita í rústum bæja og borga, meðal annars í rústum spítala sem hrundi í Cebu. Skjálftinn átti upptök sín undir eyjunni Bohol sem er vinsæll ferðamannastaður. Yfirvöld á Filipseyjum segja að flestir hafi farist í borginni Cebu, sem er meðal helstu borga landsins. Níu starfsmenn Jarðborana eru á Filipseyjum í jarðhitaverkefnum. Rúnar Þór Jónsson viðskiptaþróunarstjóri Jarðborana er í Manilla, en átta samstarfsmenn hans eru staddir á Navas sem er um 225 kílómetra frá upptökum skjálftans. „Hann auðvitað átti upptök sín í Cebu og þar varð mikið tjón. En okkar fólk fann hins vegar fyrir skjálftanum á Navas. En mesta tjónið varð í Cebu sem er á næstu eyju við okkur,“ segir Rúnar Þór Jónsson viðskiptaþróunarstjóri Jarðborana á Filipseyjum. Íslendingarnir segja að skjálftinn hafi staðið yfir í all langa stund og lengur en skjálftar sem þeir hafi fundið á Íslandi. Íslendingarnir voru ýmist staddir á hóteli sínu eða við borinn Geysi sem Jarðboranir eru að setja upp, en framkvæmdir á svæðinu eiga að hefjast á næstu dögum. „Áhöfn Geysis er í lagi en skjálftinn fannst vel á hótelinu og út við borinn. Svo hafa minni skjálftar verið að finnast af og til eftir þetta,“ segir Rúnar Þór. En ekkert ami af hans fólki og því sé ekki hætta búin.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira