Enski boltinn

Messan: Slæmt hugafar hjá City

Stefán Árni Pálsson skrifar
Séra Guðmundur Benediktsson, Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson fóru vel í gegnum sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Messunni í gær.

Þeir félagar ræddu mikið leik Manchester City og Aston Villa sem Villa vann 3-2.

„Það er bara einhver krísa í Manchester,“ sagði Hjörvar Hafliðason í gær.

„City vann Newcastle og Manchester United sannfærandi í deildinni en annars hefur liðið bara verið lélegt.

„Stjórinn hjá City er bara ekki með neina reynslu í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Bjarni Guðjónsson.

„Hann kemur úr deild þar sem stóru liðin vinna bara alltaf þau minni en núna er hann kominn í ensku úrvalsdeildina þar sem allir geta unnið alla.“

Hér að ofan má sjá myndskeið úr Messunni sem fram fór á Stöð 2 Sport 2 í gær en þátturinn verður á mánudagskvöldum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×