Enski boltinn

Torres frá í þrjár vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Torres í leik með Chelsea
Torres í leik með Chelsea nordicphotos / getty
Fernando Torres, leikmaður Chelsea, mun missa af næstu þremur vikum með liðinu en leikmaðurinn meiddist á hné í leik gegn Steaua Búkarest í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöld.

Torres meiddist á hné eftir aðeins 36 sekúndur í leiknum í Rúmeníu þegar hann gerði atlögu að boltanum. Hann reyndi að halda áfram en þurfti að fara af velli á 11. mínútu.

Torres hafði áður verið dæmdur í eins leiks bann og átti ekki að vera með Chelsea gegn Norwich um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×