Enski boltinn

Martinez: Barry hefur haft ótrúleg áhrif á hópinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gareth Barry
Gareth Barry nordicphotos / getty
Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, er gríðarlega ánægður með þau áhrif sem Gareth Barry  hefur haft á liðið eftir að hann kom til félagsins í byrjun september frá Man. City.

Barry er á láni frá City út leiktíðina og hefur komið vel inn í miðjuspilið hjá Everton á tímabilinu.

„Hann hefur gríðarlega reynslu í ensku úrvalsdeildinni og það sést glögglega,“ sagði Martinez.

„Barry er einnig einstakur karakter og hefur mjög góð áhrif á alla leikmenn hópsins, bæði innan og utanvallar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×