Mark Wilshere dugði ekki til Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. október 2013 00:01
Arsenal varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag er liðið gerði 1-1 jafntefli við West Brom á The Hawthorns. Lundúnaliðið var sterkari aðilinn í leiknum en gekk illa að skapa sér góð færi í heldur tilþrifalitlum fyrri hálfleik. Skömmu fyrir lok hans kom Claudio Yacob heimamönnum yfir með fallegum skalla eftir fasta fyrirgjöf frá hægri. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, brást fljótlega við stöðunni í síðari hálfleik og skipti hinum funheita Aaron Ramsey útaf fyrir Thomas Rosicky. Breytingin bar árangur þegar Jack Wilshere skoraði fallegt mark með skoti utan teigs eftir undirbúning Olivier Giroud. Arsenal dauðlangaði í stigin þrjú og skipti Wenger meira að segja Nicklas Bendnter inn á í leit sinni að sigurmarkinu. Allt kom fyrir ekki og liðin skiptu með sér stigunum. Arsenal fer upp fyrir Liverpool í toppsæti deildarinnar þrátt fyrir jafnteflið. Liðin hafa sextán stig og sömu markatölu en Arsenal hefur skorað fleiri mörk. West Brom, sem lagði Manchester United í síðustu umferð, hefur níu stig rétt neðan við miðja deild.
Enski boltinn Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira