Moyes virðist hafa hunsað ráðleggingar frá Ferguson Stefán Árni Pálsson skrifar 30. september 2013 08:30 David Moyes og Alex Ferguson mynd / samsett
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, virðist hafa hunsað ráðleggingar frá Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóra liðsins, um að halda áfram sama þjálfarateymi í kringum liðið. Moyes lét þá Mike Phelan, Rene Meulensteen og Eric Steele fara frá liðinu og réði sína eigin aðstoðarmenn. Chris Woods, Steve Round og Jimmy Lumsden komu allir til United ásamt Moyes frá Everton sem og Phil Neville sem er í dag hluti af þjálfarateymi Englandsmeistarana. Manchester United tapaði, 2-1, fyrir WBA á laugardaginn og versta byrjun félagsins í sögu ensku úrvalsdeildarinnar því orðin staðreynd. United er aðeins með sjö stig í 12. sæti deildarinnar. „Hann talaði við mig, Mick og Rene og sagði að okkar þjónusta væri ekki lengur óskað,“ sagði Eric Steele í enskum fjölmiðlum. „Þetta þótti mér nokkuð einkennileg ákvörðun og taldi hann vera mjög hugrakkan. Moyes hafði fengið ráðleggingar frá Alex Ferguson um að halda áfram sama teymi, en hann vildi sjálfur fá að taka þá ákvörðun.“ „Ég vildi persónulega ekki hætta hjá klúbbnum, af hverju ætti ég að vilja það?“ „Það var allt til staðar, sami mannskapur og sama viðhorf sem hefur gert þetta félag að því sem það er í dag, sigurvegarar.“ „Ferguson mældi með því að Moyes myndi halda því sem fyrir var og fá þjálfarateymið til að leiðbeina honum í upphafi tímabilsins. Við vorum vel smurða vél og allt hafði gengið einstaklega vel á árunum áður.“ „Maður verður auðvitað að skilja hans sjónarmið og ég skil í raun hans ákvörðun. Það er auðvelt að benda á þetta núna, eftir þessa byrjun hjá liðinu.“ „Þetta er gríðarleg breyting á einu liði. Knattspyrnustjórinn, yfirmaður knattspyrnumála, Scholes og allt þjálfarateymið eru allir farnir frá félaginu.“
Enski boltinn Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Fleiri fréttir Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira