Enski boltinn

Katrín fékk kveðju frá Sturridge eftir að Liverpool varð meistari

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katrín Ómarsdóttir ásamt liðsfélaga sínum Louise Fors eftir leikinn í gær.
Katrín Ómarsdóttir ásamt liðsfélaga sínum Louise Fors eftir leikinn í gær. mynd / getty images
Katrín Ómarsdóttir varð í gær enskur meistari með Liverpool er liðið hafði betur gegn Bristol City, 2-0, í hreinum úrslitaleik um það hvort liðið myndi hafna ofar í deildinni.

Katrín stóð sig vel og skoraði meðal annars mark í leiknum og hún leikur inn á miðjunni með Liverpool.

Daniel Sturridge, leikmaður karlaliðs Liverpool, var sáttur við kvennaliðið og sendi kveðju á nokkra leikmenn liðsins eftir leikinn. Ein þeirra var Katrín Ómarsdóttir eins og sjá má hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×