Wenger: Út í hött að tala um titilinn núna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2013 21:45
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er að gera frábæra hluti með liðið en Arsenal er með tveggja stiga forskot á Liverpool og Tottenham á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar. Wenger hefur mátt þola harða gagnrýni síðustu ár enda félagið titlalaust síðan 2005 en þessi frábæra byrjun á þessu tímabili hefur heldur betur boðið annars konar umræðu heim. „Við viljum að það sé rétt jafnvægi á milli metnaðar og hógværðar. Það er út í hött að tala um titilinn núna," sagði Arsene Wenger við Sky Sports en það eru aðeins búnar sex umferðir af 38. Wenger hafði engar áhyggjur þótt að Arsenal-liðið hafi tapað á móti Aston Villa á dögunum en þá fóru ensku fjölmiðlarnir á flug í að afskrifa Arsene og Arsenal-liðið. „Fólk gleymir því að við erum búnir að vera á mjög góðu skriði síðan í mars og höfðum fyrr þann leik ekki tapað einum einasta leik. Villa var bara eini tapleikurinn okkar í síðasta 21 leik liðsins," sagði Wenger. Franski stjórinn segir að þetta tap á móti Villa í bland við það að hann var ekki búinn að kaupa nýja leikmann og að félagið hafi verið titlalaust í svo langan tíma hafi magnað upp viðbrögðin í fjölmiðlum. Nú nokkrum vikum síðar er ástandið hinsvegar allt annað og fjölmiðlar tala nú upp Arsenal-liðið í stað þess að tala það niður. Arsenal er búið að vinna 5 af fyrstu 6 leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og alla þrjá leiki sína frá því að Þjóðverjinn Mesut Özil kom inn í liðið. Markatala Arsenal í þessum sex leikjum er 13-7. Það er hægt að sjá svipmyndir frá sigri Arsenal á Swansea um helgina með því að smella hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport „Meiri möguleikar fyrir mig til þess að sýna mig í Evrópu“ Fótbolti Átök Arnars og Óskars hófust í yngri flokkum: Dramatík í úrslitum á Akureyri Íslenski boltinn Leverkusen að kaupa leikmann Liverpool fyrir metverð Fótbolti Tíu ára kylfingur fór holu í höggi á Íslandsmóti Golf Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Enski boltinn Fiorentina muni ekki kaupa Albert en önnur ítölsk lið áhugasöm Fótbolti Pacers knúðu fram oddaleik Körfubolti Sjáðu þáttinn um TM-mótið: Stuðhundur, afi þjálfari og flottar fléttur Fótbolti Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Sjá meira