Enski boltinn

Swansea bar sigur úr býtum gegn Crystal Palace

Stefán Árni Pálsson skrifar
Swansea vann góðan sigur á nýliðum Crystal Palace, 2-0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Spánverjinn Michu kom gestunum frá Wales á bragðið eftir aðeins tveggja mínútna leik og var staðan 1-0 í hálfleik.

Í upphafi síðari hálfleiksins skorað síðan Nathan Dyer annað mark Swansea í leiknum og niðurstaðan því 2-0 sigur.

Swansea er í níunda sæti deildarinnar með sjö stig en Crystal Palace er í næst neðsta sætinu með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×