Enski boltinn

Bolt: Það er mér að þakka að United er að spila betur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Usain Bolt
Usain Bolt mynd / getty images
Hlauparinn Usain Bolt vill meina að hann hafi haft góð áhrif á spilamennsku Manchester United að undanförnu en Bolt er mikill stuðningsmaður liðsins.

Þegar United tapaði fyrir Liverpool 1-0 á dögunum setti Usain Bolt myndband inn á samskiptamiðilinn Instagram þar sem hann biðlaði til David Moyes um að fá sér skapandi miðjumann. Daginn eftir var Marouane Fellaini keyptur til félagsins frá Everton.

„Ég sá að við vorum ekki nægilega sterkir á miðjunni og lét áhyggjur mínar í ljós,“ sagði Bolt.

„Ég er nokkuð viss um að Moyes hafi séð myndbandið og því klárað kaupin.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×