Enski boltinn

Enginn byrjað betur en Moyes síðan Busby heitinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Moyes og Brendan Rodgers á hliðarlínunni í gærkvöldi.
Moyes og Brendan Rodgers á hliðarlínunni í gærkvöldi. Nordicphotos/Getty
Samkvæmt útreikningum íþróttafréttamanna BBC hefur enginn knattspyrnustjóri byrjað betur í starfi sem knattspyrnustjóri Manchester United en David Moyes.

Skotinn sá leikmenn sína leggja Liverpool að velli í deildabikarnum í gærkvöldi. Sigurinn var sá fimmti í átta fyrstu keppnisleikjum liðsins undir hans stjórn.

„Allir virðast uppteknir af því að finna áhugaverða tölfræði. Ég hef ekki unnið hér eða mér hefur ekki tekist þetta,“ sagði Moyes á blaðamannafundi í gærkvöldi.

„Þetta er hluti af góðu tölfræðinni,“ sagði Skotinn.

Tölurnar ljúga ekki en hafa má í huga að aðeins sjö menn hafa stýrt United frá því Busby heitinn var með liðið um miðja síðustu öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×