Af hverju er föstudagurinn þrettándi óhappadagur Þorgils Jónsson skrifar 13. september 2013 09:09 Kvikmyndirnar um illvirki Jasons Vorhees undir yfirskriftinni Friday the 13th eru nú orðnar tólf talsins og eiga sjálfsagt hlut að máli með að viðhalda goðsögninni um að föstudagurinn þrettándi boði ógæfu.
Í dag er föstudagurinn þrettándi september. Það fyrsta sem flestum dettur í hug er eflaust að dagurinn sé óhappadagur, enda er þessi hjátrú sennilega ein sú útbreiddasta á vesturlöndum.Þó erfitt sé að segja með vissu hvenær þessi trú festi rætur, eru fáar heimildir fyrir því að föstudagurinn þrettándi hafi verið álitinn sérstakur óhappadagur fyrr en undir lok nítjándu aldar. Að því sögðu hafa bæði talan þrettán og föstudagur, sitt í hvoru lagi verið álitin boða ógæfu í gegnum aldirnar og í mörgum menningarheimum. Í biblíunni er þess til dæmis getið að Adam hafi bitið í eplið forboðna á föstudegi, syndaflóðið hófst á föstudegi, guð ruglaði tungumálum turnsmiðanna í Babel á föstudegi auk þess sem Jesús sjálfur var krossfestur á föstudaginn langa. Talan þrettán hefur einnig lengi verið tengt ógæfu. Aftur í fornöld, meðal Kínverja, Egypta og allt fram í frumkristni, var þrettán álitin happatala eða tákna framhaldslíf, en á miðöldum fór gengi tölunnar að falla. Sumir vilja tengja hið illa umtal síðari tíma til þess að þrettán sé einum ofar en tólf, hin fullkomna tala að margra viti, og merki þess vegna að gengið sé of langt. Þess utan er þrettán prímtala, en þær hafa löngum haft ákveðinn sess í vitund manna. Samsetningu þessara tveggja í föstudaginn þrettánda sem séstakan óhappadag er nær hvergi getið og kemst ekki á flug fyrr en í bandarískri skáldsögu árið 1907, Friday, the Thirteenth, sem fjallaði um myrkraverk í tengslum við hlutabréfamarkaðinn. Í kjölfar vinsælda hennar á sínum tíma náði kenningin um óhappadaginn föstudaginn þrettánda fótfestu í fjölmiðlum og mögulega í vitund vesturlandabúa. Nú er talið að milljónir manna í Bandaríkjunum einum saman þjáist af paraskevídekatríafóbíu sem er fræðiheitið yfir ofsahræðslu við föstudaginn þrettánda. Þeir sem er haldnir þeim kvilla hafa nú verið í rónni óvenju lengi þar sem fjórtán mánuðir er síðan þrettándi dagur nokkurs mánaðar hefur borið upp á föstudag, sem er það lengsta sem gerist og átti sér síðast stað á milli áranna 2001 og 2002. Þeir geta hins vegar strax farið að undirbúa sig fyrir hinn næsta, sem verður strax í desember. Aðrir geta bara hagað sínum dögum eins og þeim sýnist, óháð hjátrú og hindurvitnum.Heimildir: About.com og The Straight Dope
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Sjá meira