Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - Keflavík | Fjórði sigur Fylkis í röð Sigmar Sigfússon í Lautinni skrifar 11. ágúst 2013 00:01
Fylkir vann sannfærandi 3-0 sigur á Keflvíkingum í 15. umferð Pepsi-deildar karla á Árbæjarvelli í kvöld. Fylkismenn hafa unnið alla fjóra leiki sína í seinni umferð Íslandsmótsins. Fylkismenn byrjuðu leikinn af krafti og virkuðu einbeittir og ákveðnir. Guy Roger Eschmann, leikmaður Fylkis, var mjög sprækur í fyrri hálfleik og lék Keflvíkinga oft á tíðum grátt. Fylkisliðið varð fyrir áfalli á 16. mínútu þegar Ásgeir Börkur Ásgeirsson fór af velli vegna meiðsla. Ásgeir var tæpur í nára fyrir leikinn en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Það virtist ekki hafa nein áhrif á spilamennsku heimamanna og þeir skoruðu fyrsta markið á 26. mínútu. Guy Roger átti þá góðan sprett upp allan völlinn og við vítateigsbrúnina renndi hann knettinum til vinstri þar sem Andrés Jóhannesson kemur á ferðinni og skorar laglega framhjá Ómari í markinu. Keflvíkingar voru oft á tíðum í miklum vandræðum með varnarleik sinn í fyrri hálfleik og Fylkismenn gengu á lagið. Það var síðan á 45. mínútu sem heimamenn fengi dæmda vítaspyrnu. Markarskorarinn Andrés var felldur inn í teig Keflvíkinga. Finnur Ólafsson fór á punktinn og skoraði örugglega. Staðan í Hálfleik var 2-0 fyrir Árbæinga. Seinni hálfleikur hófst eins og sá fyrri lauk og Fylkismenn voru mun sterkari aðilinn. Það var mikil harka í leiknum og eitthvað um pústra. Guy Roger sýndi lipra takta ásamt Viðari Erni Kjartansssyni. Það var svo á 85. mínútu sem þriðja mark Fylkis kom. Þar var að verki Selfyssingurinn knái Viðar Örn sem skoraði gott mark eftir frábæra sendingu inn fyrir vörnina frá Emil Berger. Lokastaðan var 3-0 fyrir Fylki. Keflvíkingar náðu ekki að fylgja eftir góðum sigri frá því í síðustu umferð en Fylkir var að vinna fjórða leikinn í röð.Mynd/DaníelÁsmundur: Tvö ný félagsmet „Andinn er yndislegur núna. Mér skilst að við séum að setja tvö ný félagsmet þessa dagana. Það fyrra var versta byrjun í sögu félagssins og það seinna lengsta „run“ í sigureikjum,“ sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis léttur eftir leikinn. „Menn voru auðvitað mjög hungraðir eftir slæma byrjun. En við vorum ef til vill dálítið hræddir fyrir þennan leik þar sem við vorum í fyrsta sinn að mæta liði sem var fyrir neðan okkur. En það hófst.“Kristján: Dæmigert fyrir Coco Puffs kynslóðina „Þessi leikur er dæmigerður fyrir þessa Coco Puffs kynslóð. Það að verða bara að einverju lofti inn á vellinum. Sérstaklega í seinni hálfleik,“ sagði Kristján Guðmundsson mjög fúll eftir leikinn og bætti við: „Við vorum líka lélegir í fyrri hálfleik og gerðum heilt yfir allt of mikið af mistökum í þessum leik. Það voru allt of margir sem voru hreinlega týndir inn á vellinum. Það kemur fyrir að menn eiga lélegan leik en núna voru það of margir,“ sagði Kristján að lokum.Viðar Örn: Sjálfstraustið er meira í hópnum „Ég var ekki alveg nógu sáttur með leikinn svona heild sinni en við vorum miklu betra liðið í leiknum í sjálfum sér,“ sagði Rakarasonurinn knái, Viðar Örn Kjartansson eftir leikinn. „Sjálfstraustið er miklu meira í hópnum núna og við erum að vinna fyrir hvorn annan. Nýtum færin og fáum fá mörk á okkur og um það snýst leikurinn. Ég get ekki verið annað enn sáttur með 3-0 sigur annað væri einfaldlega vitleysa.“ Sagði Viðar kátur í lokin.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Fótbolti „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Sjá meira