Erlent

Tugir látnir í árásum vígamanna í Nígeríu

Þorgils Jónsson skrifar
Stjórnarhermenn í Nígeríu hafa tekist á við Boko Haram síðustu misseri.
Stjórnarhermenn í Nígeríu hafa tekist á við Boko Haram síðustu misseri. Mynd/AP
Vígamenn úr hópi Boko Haram, öfgafullra íslamista, eru grunaðir um að standa á bak við skotárás á mosku eina í norðaustur Nígeríu á sunnudag þar sem 44 féllu. Þeir eru einnig grunaðir um að hafa drepið tólf til viðbótar í annarri árás í sama landshluta.

Ekki er vitað um mögulegar ástæður á bak við ódæðin eða hvers vegna Boko Haram myndi ráðast á trúbræður sína við bænir, en samtökin hafa áður ráðist á moskur þar sem klerkar hafa gagnrýnt öfgastefnu líkt og þá sem Boko Haram aðhyllist.

Boko Haram hafa verið sakaðir um að myrða fleiri en 1.700 manns frá og með árinu 2010. Leiðtogi samtakanna, Abubakar Shekau, sagði í yfirlýsingu um helgina að fleiri árása væri að vænta. Hann gumaði sig af drápum undanfarið og bætti því fið að þeir hefðu vaxið að afli og væru nú tilbúnir til að takast á við bandaríska herinn ef því væri að skipta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×