Suarez skellir skuldinni á fjölmiðla 31. maí 2013 07:56
Það er ansi margt sem bendir til þess að framherjinn Luis Suarez fari frá Liverpool í sumar. Hann hefur nú í annað sinn á skömmum tíma gefið í skyn að hann sé að fara. Hermt er að hann sé búinn að ná samkomulagi við Real Madrid en Liverpool hefur samt ekki samþykkt tilboð frá spænska félaginu. Suarez sagði fyrr í vikunni að hann langaði að spila á Spáni og nú segir hann að þetta sé góður tími fyrir hann að fara. "Eftir allt sem ég hef gengið í gegnum á Englandi þá er þetta fínn tími fyrir breytingar. Ég hef átt mjög erfitt uppdráttar á Englandi og það er búið að segja og skrifa margt um mig sem eru lygar. Það hafa allir sín þolmörk og þetta tekur líka sinn toll á fjölskyldunni," sagði Suarez. "Ég hef samt alls ekkert á móti Liverpool. Þvert á móti líður mér vel hjá félaginu. Ég á aftur á móti dóttur sem ég vil ekki að sé að heyra slæma hluti um föður sinn. Ég veit ekki hvenær ég fer eða hvort ég verði áfram. "Ef ég fer frá Liverpool þá er það út af meðferðinni sem ég hef fengið frá fjölmiðlum. Þeir hafa farið mjög illa með mig. Fjölskyldan og ímyndin skiptir mig mestu máli. Fólkið hjá Liverpool veit hvað ég hef þurft að ganga í gegnum, að það var farið illa með mig. Mér líður að mörgu leyti illa á Englandi." Suarez er staddur í herbúðum úrúgvæska landsliðsins þessa dagana.
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira