"Mestu vonbrigði ferilsins" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. apríl 2013 07:38
Harry Redknapp, stjóri QPR, gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir 1-1 jafntefli sinna manna gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Allt stefndi í ótrúlegan 1-0 sigur QPR þegar Shaun Maloney tryggði Wigan annað stigið með marki úr aukaspyrnu á fjórðu mínútu viðbótartíma. QPR hafði spilað í 74 mínútur manni færri eftir að Bobby Zamora var réttilega vikið af velli fyrir háskaleik gagnvart Jordi Gomez á 21. mínútu. „Þessi úrslit eru ekki aðeins mestu vonbrigði tímabilsins heldur fótboltaferils míns," sagði Redknapp sem hefur marga fjöruna sopið. Loic Remy hafði komið QPR yfir fimm mínútum fyrir leikslok með sannkölluðu draumamarki. Stephane M'bia, Kamerúninn á miðjunni hjá QPR, átti stóran þátt í markinu. Það var hins vegar M'bia sem gaf ódýra aukaspyrnu sem Maloney skoraði jöfnunarmarkið mikilvæga úr í blálokin. „Við áttum þetta ekki skilið. Við áttum skilið að vinna þennan leik enda vorum við manni færri nánast allan leikinn. Þetta var frábær framistaða hjá öllum leikmönnum mínum og það er glæpsamlegt að þeir þurfi að sætta sig við tap," sagði Redknapp. Segja má að um ígildi taps hafi verið að ræða enda hefði QPR getað minnkað bilið í Wigan í fjögur stig með sigri. Enn munar sjö stigum á liðunum og möguleiki QPR um að halda sæti sínu í deildinni virðist afar fjarlægur þegar liðið á sex leiki eftir. Mörkin úr leiknum voru vægast sagt stórglæsileg og má sjá þau í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir QPR missti af sigri á síðustu sekúndunum Harry Redknapp og lærisveinar hans í Queens Park Rangers misstu af sigri á síðustu sekúndunum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Wigan í sannkölluðum sex stiga leik í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. 7. apríl 2013 14:45 Mest lesið Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Tekur Ómar hlutverki fyrirliða Íslands of alvarlega? Handbolti Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Hver er staðan og hvað tekur við? Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti Sjáðu myndirnar: Svekkelsi gegn Sviss Handbolti Segir að hrokinn hafi orðið Frökkum að falli Handbolti Séra Guðni mættur til Malmö: „Við erum að fara í undanúrslit“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira
QPR missti af sigri á síðustu sekúndunum Harry Redknapp og lærisveinar hans í Queens Park Rangers misstu af sigri á síðustu sekúndunum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Wigan í sannkölluðum sex stiga leik í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. 7. apríl 2013 14:45