Erlent

Hryllingur í Pakistan

MYND/AFP
Hátt í fimmtíu fórust þegar sprengja sprakk á grænmetismarkaði í suðvesturhluta Pakistan fyrr í dag. Sextíu aðrir særðust, margir lífshættulega.

Samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum í Pakistan er ljóst er að sprengjan var gríðarlega öflug.

Ódæðismaðurinn hafði hlaðið sprengiefni á mótorhjól sem hann lagði við markaðinn og sprengdi í loft stuttu seinna. Börn og konur eru á meðal þeirra létust. Flestir íbúar á svæðinu eru Sjítar.

Asif Ali Zardari, forseti Pakistan og Raja Pervez, forsætisráðherra, hafa báðir fordæmt sprengjuárásina og hafa heitið því að tilræðismennirnir verði sóttir til saka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×