James og Hermann spila bæði með ÍBV og Portsmouth í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2013 14:30 David James faðmar Hermann Hreiðarsson þegar þeir urðu saman enskir bikarmeistarar. Mynd/Nordic Photos/Getty
Eyjamenn mæta Portsmouth á Fratton Park í kvöld í góðgerðaleik til styrktar Portsmouth en þetta fornfræga félag hefur verið í miklum peningavandræðum síðustu misseri. Hermann Hreiðarsson, núverandi þjálfari ÍBV og fyrrum leikmaður Portsmouth, kom með þá hugmynd að spila þennan leik en ÍBV-liðið er einmitt í æfingaferð á Englandi. Hermann og Eyjamenn sáu til þess að Portsmouth þarf ekki að leggja út fyrir neinum kostnaði í tengslum við leikinn nema þá að hýsa leikinn á Fratton Park. Á eyjamenn.com kemur fram að það hafi verið búið að selja sjö þúsund miða á leikinn í morgun og að vonir standi til þess að nokkur þúsund miðar seljist til viðbótar í dag. Allur ágóði af leiknum rennur í að styrkja slæma fjárhagsstöðu Portsmouth. David James mun leika sinn fyrsta leik með ÍBV í kvöld og þá ætlar Hermann Hreiðarsson þjálfari liðsins að spila í vörninni. Það kom einnig fram á Sky í gær að James og Hermann munu leika síðustu tuttugu mínútur leiksins með gömlu félögunum í Portsmouth. Leikurinn hefst klukkan 19.45 að breskum tíma eða 18.45 á íslenskum tíma. Það kostar tíu pund á leikinn fyrir fullorðna, eldri borgarar og yngra fólk (17 til 22 ára) greiðir fimm pund en krakkar undir 17 ára þurfa bara að borga eitt pund. Portsmouth gefur líka út glæsilega 24 síðna leikskrá í tengslum við leikinn þar sem aðalviðtalið er við Hermann Hreiðarsson. Blaðið kostar bara eitt pund en ágóðinn af því fer á sama stað og ágóðinn af sölu miða á leikinn.
Enski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Handbolti Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Sjá meira