Enski boltinn

Eriksen: Ég valdi rétt

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Danski leikstjórnandinn Christian Eriksen segist hafa valið rétt þegar hann valdi að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham sem Gylfi Þór Sigurðsson leikur með í ágúst.

Eriksen lék með góðan orðstýr hjá hollensku meisturunum í Ajax og hafnaði  hann því að ganga til liðs við Manchester City sumarið 2012. Eriksen var ítrekað orðaður við sterk félög víðsvegar um Evrópu og var aðeins tímaspursmál hvenær hann yfirgæfi Ajax.

„Það tók mig nokkurn tíma að fara til Englands vegna þess að ég sagði nei nokkrum sinnum. City vildi mig síðasta sumar en mér fannst það ekki rétt fyrir mig,“ sagði hinn 21 árs gamli Dani.

„Kannski hefði ég ekki spilað þar. Ég vildi ekki fara til félags þar sem ég hefði verið meira og minna á bekknum. Mér fannst ég ekki heldur tilbúinn í ensku úrvalsdeildina og nú finnst mér ég hafa komið á réttum tíma.

„Það yfirgáfu margir leikmenn Ajax fyrir síðasta tímabil og það gaf mér aukna ábyrgð sem hjálpaði mér að vaxa. Þetta gerði mig að betri leikmanni. Þetta var spennandi þar og ég beið eftir rétta félaginu að koma áleiðis.

„Ég las mér til um sögu Spurs og hef séð fjölda leikja í gegnum árin. Ég vissi nokkuð um félagið, hér skiptir sköpunargáfa sköpum,“ sagði Eriksen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×