Enski boltinn

City nálgast met United

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jesus Navas var á skotskónum um helgina.
Jesus Navas var á skotskónum um helgina. Nordicphotos/Getty
Manchester City er aðeins tíu leikjum frá því að jafna met granna sinna yfir fjölda heimaleikja í röð þar sem liðið skorar mark.

City, sem slátraði Tottenham 6-0 um helgina, hefur nú skorað í 56 heimaleikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni. United á metið en liðið skoraði í sínum 66. heimaleik í röð í apríl síðastliðnum.

City hefur skorað langflest mörk allra liða á heimavelli í deildinni í vetur eða 26. Raunar hefur engu öðru liði tekist að skora jafnmörg mörk samanlagt í deildinni til þessa og City hefur skorað á Etihad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×