Ný regla hjá Sir Alex: 23 ára og yngri mega ekki eignast sportbíla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2012 13:30 Sir Alex Ferguson passar upp á sína stráka. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það standa ekki allir leikmenn Manchester United við sama borð þegar kemur að því að þiggja gjafir frá styrktaraðilum félagsins. Enska úrvalsdeildarliðið gerði nýverið samning við bílarisann Chevrolet en samningurinn mun taka gildi eftir tvö ár. Chevrolet ætlaði að fagna þessum nýja samningi með því að bjóða öllum leikmönnum Manchester United nýjan bíl að eigin vali en stjórinn Sir Alex Ferguson var fljótur að setja nýjar reglur fyrir sína leikmenn. Ryan Giggs og aðrir eldri leikmenn liðsins hafa leyfi til að velja sér hraðskreiðustu sportbílana í flota Chevrolet en þeir sem eru ekki orðnir 23 ára gamlir þurfa að bera val sitt undir stjórann. Giggs er þekktur fyrir áhuga sinn á sportbílum og mun nær örugglega velja kraftmestu Corvettuna. Sir Alex Ferguson ætlar að gera sitt í að passa upp á að ungir leikmenn sínir missi ekki fótanna og verði freistingum að bráð en ljúfa lífið hefur hindrað margan ungan fótboltamanninn að þroskast og bæta sig sem leikmann og það veit hinn reynslumikli stjóri manna best. Danny Welbeck, Phil Jones, Chris Smalling og Rafael eru allir fastamenn í liði Manchester United liðsins en mega ekki fá sportbíl frá Chevrolet og þurfa að bera val sitt undir stjórann.
Mest lesið Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Brighton - Aston Villa | Algjört hrun í fyrsta leik Aston Villa Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Sjá meira