Gylfi lagði upp sigurmarkið í sínum fyrsta deildarleik með Swansea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2012 15:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæra innkomu í sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar hann lagði upp sigurmark Swansea City í 3-2 sigri á Arsenal. Gylfi kom inn á sem varamaður í hálfleik og lagði upp sigurmarkið sem Danny Graham skoraði á 70. mínútu. Swansea City hoppaði fyrir vikið upp um þrjú sæti og upp í 10. sæti deildarinnar en liðið er búið að vinna þrjá fyrstu leiki sína í deild og bikar á árinu 2012. Gylfi kom líka inn á sem varamaður í 4-2 bikarsigri á Barnsley um síðustu helgi en hann er í láni frá þýska félaginu Hoffenheim. Arsenal fékk draumabyrjun í leiknum þegar Robin van Persie skoraði á 5. mínútu eftir að hafa fengið stungusendingu frá Andrei Arshavin. Swansea jafnaði metin ellefu mínútum síðar en Scott Sinclair skoraði þá úr vítaspyrnu sem dæmd var á Aaron Ramsey fyrir brot á Nathan Dyer. Gylfi Þór kom inn á sem varamaður í hálfleik og tólf mínútum síðar kom Nathan Dyer Swansea í 2-1 eftir varnarmistök hjá Arsenal. Gylfi Þór tók sex hornspyrnur á fyrstu 17 mínútum í seinni hálfleik og Swansea pressaði Arsenal-liðið grimmt. Arsenal náði hinsvegar skyndisókn á 69. mínútu, Theo Walcott slapp í gegn eftir langa sendingu frá Johan Djourou og lyfti boltanum skemmtilega yfir Michel Vorm, markvörð Swansea. Swansea tók sér ekki langan tíma í að komast aftur yfir í leiknum. Gylfi Þór stakk boltanum þá inn á Danny Graham sem skoraði laglega. Þetta var ekki fyrsta færið sem Gylfi bjó til fyrir Graham í leiknum. Arsenal pressaði mikið á lokakafla leiksins en tókst ekki að skapa sér nægilega góð færi og baráttuglaðir leikmenn Swansea héldu út. Thierry Henry kom inn á 63. mínútu leiksins en það dugði ekki til. Arsenal er áfram í 5. sæti fjórum stigum á eftir Chelsea sem er í 4. sætinu.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira