Áfrýjun Man. City vísað frá | Kompany fer í fjögurra leikja bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2012 15:49 Vincent Kompany. Mynd/Nordic Photos/Getty
Enska knattspyrnusambandið hefur vísað frá áfrýjun Manchester City vegna rauða spjaldsins sem Vincent Kompany fékk í bikartapinu á móti Manchester United um síðustu helgi. Kompany var rekinn útaf á tólftu mínútu fyrir tveggja fóta tæklingu á Nani. Kompany er því á leiðinni í fjögurra leikja bann en fyrsti leikurinn verður á móti Liverpool í undanúrslitum enska deildarbikarsins annað kvöld. Kompany missir líka af deildarleikjum á móti Wigan og Tottenham sem og seinni undanúrslitaleiknum á móti Liverpool. Kompany fer í fjögurra leikja bann af því að hann fékk einnig rautt spjald í 3-1 sigri Manchester City á Wolves í ensku úrvalsdeildinni 29. október síðastliðinn. Roberto Mancini, stjóri Manchester City, var yfirlýsingaglaður eftir bikarleikinn á móti Manchester United og talaði um að það væri 300 prósent öruggt að þetta hafi ekki verið rautt spjald. Flestir knattspyrnuspekingar töluðu einnig um að þetta væri strangur dómur en samkvæmt bókinni þá eiga menn að fá rautt spjald fyrir tveggja fóta tæklingar. Kompany reyndi slíka tæklingu í þessu tilfelli þrátt fyrir að hann hafi ekki komið við Nani.
Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira