Stuðningsmenn Shenhua ósáttir með leikinn á móti Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2012 10:30 Þessi þrjú héldu með Manchester United. Mynd/Nordic Photos/Getty
Margir stuðningsmanna Shanghai Shenhua skrópuðu á æfingaleik liðsins á móti enska stórliðinu Manchester United sem fram fór í Kína í gær. 42 þúsund manns mættu á leikinn sem United vann 1-0 en afar fáir voru klæddir búningi Shanghai Shenhua liðsins. Stuðningsmenn Shanghai Shenhua eru ósáttir með að þessi leikur hafi verið skipulagður á miðju tímabili liðsins en United er eitt margra félaga sem notar undirbúningstímabilið til að auka vinsældir sínar í Asíu. „Ég held að Manchester United myndi aldrei samþykkja að mæta Shenhua á miðju þeirra tímabili og því ættum við að gera það. Þessi leikur snýst aðeins um peninga," sagði Ma Haiping, einn stuðningsmanna félagsins, við FP-fréttastofuna. Stuðningsmenn Shenhua-liðsins stóðu fyrir baráttuherferð á netinu í aðdraganda leiksins þar sem allir alvöru stuðningsmenn félagsins voru hvattir til að skrópa á leikinn. „Leyfum styrktaraðilum okkar að sjá að þessi leikur, sem lyktar af peningagræðgi og markaðssetningu, á ekki að fara fram á miðju okkar tímabili," stóð meðal annars á vefsíðunni og á boða í stúkunni stóð á ensku: "Love football, hate business" eða upp á íslensku "Elskum fótbolta - hötum viðskipti."
Mest lesið Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Fótbolti Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Körfubolti Dagskráin í dag: Stjarnan með sóp á Króknum og Arsenal slæst við Atlético Sport Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Handbolti Fleiri fréttir Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjá meira