Handbolti

Reynir vann Ís­lendingana sem tapa nánast aldrei

Sindri Sverrisson skrifar
Reynir Þór Stefánsson og félagar unnu frábæran sigur í dag.
Reynir Þór Stefánsson og félagar unnu frábæran sigur í dag. Getty/Andrzej Iwanczuk

Eftir að hafa aðeins tapað einum deildarleik á allri síðustu leiktíð hefur Íslendingaliðið Magdeburg nú þegar mátt þola sitt fyrsta tap í vetur, í þýsku 1. deildinni í handbolta.

Meistarar Magdeburg töpuðu nefnilega 37-34 á útivelli gegn Melsungen í dag.

Reynir Þór Stefánsson átti sinn þátt í því en hann skoraði þrjú mörk í leiknum. 

Gísli Þorgeir Kristjánsosn skoraði sjö fyrir Magdeburg og var næstmarkahæstur á eftir Felix Claar sem skoraði ellefu fyrir liðið. Gísli átti líka fjórar stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon skoraði þrjú mörk og átti fimm stoðsendingar en Elvar Örn Jónsson var ekki á meðal markaskorara.

Melsungen var 19-15 yfir í hálfleik og náði svo níu marka forskoti, 34-25, en þá náðu gestirnir mögnuðum kafla og minnkuðu muninn í þrjú mörk, 34-31, þegar enn voru tæpar fjórar mínútur eftir. 

Heimamenn stóðust hins vegar pressuna og fögnuðu frábærum sigri. 

Magdeburg er nú með átta stig eftir fimm leiki en Melsungen sjö. Efst eru Flensburg og Kiel með fullt hús stiga.

Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt marka Hamburg sem tapaði með þriggja marka mun á útivelli gegn Flensburg, 37-34.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×