Newcastle vann 3-0 sigur á Man. United | Tvö töp í röð hjá meisturunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2012 19:30
Newcastle vann 3-0 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og hefur þar með tekið fjögur stig út úr tveimur leikjum sínum á móti ensku meisturunum á tímabilinu. Þetta var fyrsti heimsigur Newcastle-liðsins síðan 5. nóvember og ennfremur fyrsta tap United á útivelli á tímabilinu. Þetta var fyrsti sigur Newcastle á Manchester United í meira en áratug eða síðan í september 2001. Demba Ba og Yohan Cabaye hafa verið frábærir hjá Newcastle á tímabilinu og voru báðir á skotskónum í leiknum í kvöld en Newcastle var fyrir leikinn aðeins búið að vinna einn af síðustu átta deildarleikjum sínum. Manchester United er þar með búið að tapa tveimur deildarleikjum í röð en liðið lá 2-3 á heimavelli á móti Blackburn Rovers í leiknum á undan. Nágrannarnir i Manchester City verða því áfram með þriggja stiga forskot á United á toppi deildarinnar. Demba Ba skoraði fyrsta markið á 33. mínútu. Tim Krul átti langt útspark sem Shola Ameobi skallaði fyrir fætur Demba Ba sem lyfti boltanum laglega yfir Anders Lindegaard í markinu. Yohan Cabaye skoraði annað markið á 47. mínútu með stórglæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu af 30 metra færi. Þriðja og síðasta markið var síðan afar klaufalegt sjálfsmark Phil Jones á 90. mínútu sem setti punktinn á bak við vandræðalegt tap United-liðsins.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira