Sársaukinn gleymist í hita leiksins Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. júní 2012 10:30 Þessi mynd var tekin af Úlfari eftir leik og eins og sjá má er lítið eftir af tönninni.
Valsmaðurinn Úlfar Hrafn Pálsson sýndi af sér fádæma hörku í leik Vals og Keflavíkur á fimmtudag. Önnur framtönnin brotnaði þá en hann gaf sjúkraþjálfaranum tönnina og hélt áfram að spila. „Ég held það hafi verið Bojan Stefán sem var að sparka í burtu og þá sveiflaðist höndin á honum í andlitið á mér. Ég fékk hnefann bara í andlitið. Þetta var örugglega óviljandi hjá honum. Rúmlega helmingurinn af tönninni fór af," sagði Úlfar en hann varð að fara af velli til að fá aðhlynningu. „Þetta var frekar vont. Ég fann frekar mikið fyrir þessu. Maður lætur það ekki stoppa sig. Sjúkraþjálfarinn tók tönnina fyrir mig og ég hélt svo áfram." Um 20 mínútum síðar var sársaukinn orðinn of mikill og Úlfar varð að fara af velli. „Ég sagði þá við þjálfarann að ég væri ekki alveg heill í hausnum. Ég var kominn með hausverk út af verknum í tönninni og þá verður maður pirraður. Ég var líka á gulu spjaldi og því var skynsamlegt að fara af velli. Ég gleymdi samt sársaukanum til að byrja með í hita leiksins." Það var strax farið í að ræða við tannlækna og Úlfar hitti einn slíkan á golfvellinum í Hafnarfirði. Sá skoðaði hann og sagði honum að mæta til sín daginn eftir. Úlfar varð því að bryðja verkjatöflur fyrir nóttina og bíða. „Nóttin var ekkert frábær en ég svaf þetta af mér. Það er búið að líma tönnina á og verið að athuga hvort það dugar. Ef ekki þarf ég líklega að fá nýja tönn. Ég vona það besta."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira