Erlent

Fjöldamorðinginn ætlar að birta myndbönd af morðunum í dag

Gríðarlegur viðbúnaður er við fjölbýlishúsið í Toulouse.
Gríðarlegur viðbúnaður er við fjölbýlishúsið í Toulouse. mynd/AP
Meintur fjöldamorðingi sem nú hefur verið króaður af í fjölbýlishúsi í borginni Toulouse í Frakklandi hafði samband við fréttastofuna France 24 í nótt. Maðurinn lýsti yfir ábyrgð á morðunum við blaðamann og sagðist hafa myndað ódæðin.

Maðurinn heitir Mohammed Merah og er 24 ára gamall. Hann er þekktur ofbeldismaður í Toulouse og hefur leyniþjónusta Frakklands fylgst með ferðum hans síðustu mánuði.

Merah sagði blaðamanni France 24 að ódæðin hefðu verið svar við þjáningu fólks á Gaza-svæðinu. Hann sagði einnig að búrkubann í Frakklandi og stríðið í Afganistan hefðu verið hvatar að ódæðunum.

Merah sagðist ætla að birta myndbönd af morðunum á internetinu í dag.

Samkvæmt innanríkisráðherra Frakklands, Claude Gueant, heimsótti Merah bæði Afganistan og Pakistan á síðustu árum.

Talið er að Merah ætli að gefast upp seinna í dag. Fyrr í dag fann lögreglan töluvert magn vopna í bíl sem stóð fyrir utan fjölbýlishúsið.

Talið er að Merah hafi staðið að árásinni á gyðingaskóla í borginni fyrr í vikunni. Fjórir létu lífið, þar á meðal þrjú börn.


Tengdar fréttir

Sama byssan notuð í árásum á hermenn

Talið er að byssan sem notuð var í skotárás í skóla fyrir gyðinga í frönsku borginni Toulouse í morgun hafi verið notuð í tveimur eldri árásum. Sama er að segja um vélhjólið sem árásarmaðurinn notaði en hjólinu og byssunni var stolið fyrir nokkru. Fjórir létust í árásinni í morgun og sautján ára piltur særðist alvarlega.

Fjöldamorðingja leitað í Frakklandi

Fjórir eru látnir eftir að byssumaður á vespu eða mótorhjóli hóf skothríð við gyðingaskóla í borginni Toulouse í Frakklandi í gærmorgun. Þrjú börn létust og eitt er alvarlega sært. Viðtæk leit hefur verið gerð að manninum.

Gífurleg leit að árásarmanninum í Toulouse

Einhver mesta lögregluleit í sögu Frakklands er nú gerð að árásarmanninum sem skaut fjóra til bana, þar af þrjú börn fyrir utan gyðingaskóla í borginni Toulouse í gærmorgun.

Fjórir látnir eftir skotárás í Frakklandi

Fjórir eru látnir eftir að maður hóf skotárás á gyðingaskóla í borginni Toulouse í Frakklandi í morgun. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands segir árásina vera þjóðarharmleik.

Fjöldamorðinginn umkringdur af lögreglu í Toulouse

Sérsveit frönsku lögreglunnar hefur staðið í skotbardaga í nótt við húsi í úthverfi Toulouse en þar býr maður sem grunaður er um aðild að skotárásinni á gyðingaskóla í borginni fyrr í vikunni. Búið er að handtaka bróður mannsins en tveir lögreglumenn munu hafa særst í bardaganum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×