Kemur til greina að færa bikarúrslitaleikinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. janúar 2012 12:15 Manchester City varð bikarmeistari í fyrra. Nordic Photos / Getty Images
Forráðamenn enska knattspyrnusambandsins eru nú að velta því fyrir sér hvort það eigi að láta úrslitaleik ensku bikarkeppninnar fara fram á öðrum tíma en venja hefur verið. Sambandið vill að leikurinn fari fram á degi þar sem enska úrvalsdeildin er í fríi en það hefur oft reynst erfitt. Flýta þurfti úrslitaleiknum í fyrra vegna þess að úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fór einnig fram á Wembley-leikvanginum. Úrslitaleikurinn fór fram klukkan 15.00 þann 14. maí en fyrr um daginn fóru fram fjórir leikir í ensku úrvalsdeildinni. Úrslitaleikurinn hefur ávallt verið leikinn klukkan 15.00 á laugardegi en nú gæti það breyst. „Það sem mestu máli skiptir er að leikurinn standi upp úr, jafnvel þótt að hann fari ekki fram á síðasta degi tímabilsins," sagði Alex Horne, framkvæmdarstjóri enska sambandsins. „Við erum að ræða við ensku úrvalsdeildina um þann möguleika að taka frá einn laugardag fyrir bikarúrslitaleikinn. Við erum líka að skðoa þann möguleika að láta leikinn fara fram síðar um daginn svo að ekki þurfi að færa leiki [í neðri deildum] sem fara fram klukkan 15.00 á laugardögum. Þannig fengju stuðningsmenn þeirra liða tækifæri til að styðja sitt lið og horfa svo á leikinn í sjónvarpi síðar um daginn." „Við erum að reyna að skapa leiknum smá sérstöðu og vonandi tekst það sem allra fyrst."
Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi Körfubolti Fleiri fréttir Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann Sjá meira