Umboðsmaður Tevez: Carlos verður hjá Manchester City fram á sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2012 16:45 Carlos Tevez. Mynd/Nordic Photos/Getty
Carlos Tevez er ekkert á förum frá Manchester City í janúarglugganum ef marka má nýtt viðtal við umboðsmanninn hans Kia Joorabchian. City hefur verið í viðræðum við Inter Milan, AC Milan og Paris St Germain en ekkert þeirra er tilbúið að borga þær 25 milljónir punda sem ensku bikarmeistararnir vilja fá fyrir Argentínumanninn. „Við höfum verið í samningarviðræðum við þrjú stór félög en ég held að ekkert þeirra er tilbúið að borga það sem Manchester City vill fá fyrir hann," sagði Kia Joorabchian við Talksport-útvarpsstöðina í Bretlandi. Carlos Tevez hefur ekkert æft né spilað með Manchester City liðinu frá því í september eða síðan að hann neitaði að hita upp fyrir Meistaradeildarleik á móti Bayern München. „Carlos verður hjá Manchester City fram á sumar. Manchester City vill selja hann en fær bara ekki nógu góð tilboð í hann," sagði Joorabchian í umræddu viðtali. Tevez lék sinn síðasta leik með Manchester City á móti Birmingham í enska deildarbikarnum 21. september síðastliðinn. Hann spilaði með City í Meistaradeildinni og það spillir fyrir áhuga marga af stærstu liðunum sem hefðu viljað notað hann í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. „Margir markaðir munu opnast í sumar því öll stærstu félögin verða þá á höttunum eftir leikmönnum sem geta spilað í Meistaradeildinni. Carlos Tevez má ekki spila í Meistaradeildinni í ár og það er stór tálmi í öllum samningarviðræðum í dag. Félög þurfa að eyða miklum pening í að kaupa hann og borga honum laun en geta síðan ekki notað hann í Meistaradeildinni," sagði Joorabchian.
Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira