Sir Alex vill að sínir menn taki í höndina á bæði Terry og Suarez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2012 22:45 Patrice Evra og Rio Ferdinand. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, mun ráðleggja bæði Rio Ferdinand og Patrice Evra að taka í höndina á John Terry og Luis Suarez fyrir komandi leiki Manchester United á móti Chelsea og Liverpool. Þetta verða fyrstu leikir United á móti þeim Terry og Suarez síðan að þeir voru sakaðir um kynþáttafordóma gegn bróðir Rio og Evra. Leikmenn tókust ekki í hendur fyrir bikarleik QPR og Chelsea um síðustu helgi en það var ákveðið í kjölfarið á umræðu um að Anton Ferdinand ætlaði ekki að taka í höndina á John Terry. Rio Ferdinand, bróðir Antons, hefur stutt hann opinberlega og það hefur verið orðrómur í gangi að hann ætli ekki að taka í höndina á John Terry fyrir leik Chelsea og Manchester á sunnudaginn. „John Terry mun sennilega ekki spila þennan leik þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United en Terry er tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla. „Ég mun samt ræða við Rio til að sjá hver staða hans er í þessu máli. Hann hefur barist gegn kynþáttafordómum í mörg ár og þessi mál hafa alltaf skipt hann miklu máli þann tíma sem ég hef þekkt hann. Hann verður samt að komast yfir þetta og það að taka í höndina á Terry er ekkert til að skammast sín fyrir," sagði Ferguson. „Það er sömu sögu að segja um næstu helgi þegar Patrice Evra mætir Liverpool. Patrice hefur þegar sýnt hugrekki með því að berjast á móti kynþáttaformdómum gegn sér og hann þarf ekki að skammast sín fyrir neitt. Ég held að það verði ekki vandamál hjá honum að taka í höndina á Suarez," sagði Ferguson.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Sport Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Körfubolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira