Lundúnaslagur í skugga dóms Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. september 2012 07:00 Terry spilar í dag þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í bann í vikunni. nordicphotos/Getty
Lundúnaliðin Arsenal og Chelsea mætast í hádegisleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og er leiksins eins og ávallt beðið af mikilli eftirvæntingu. Augu flestra munu þó vafalaust beinast að John Terry, fyrirliða Chelsea, sem í fyrradag var dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir kynþáttaníð gagnvart Anton Ferdinand, leikmanni QPR. Terry er þó enn að íhuga hvort hann eigi að áfrýja dómnum og hefur hann tvær vikur til þess. Af þeim sökum er refsingu frestað þar til niðurstaða fæst í áfrýjunarferlið. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að Terry spili á morgun og segja forráðamenn Chelsea það enga fyrirstöðu þó svo að hann hafi ekki æft mikið í vikunni. „Ég hef engar áhyggjur af John,“ sagði Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea. „Hann er fagmaður og býr yfir eins mikilli reynslu og mögulegt er. Þetta mál hefur tekið langan tíma og það eina sem við getum gert er að bíða og sjá til. En hann er gjaldgengur fyrir þennan leik og hefur ekkert breyst okkar megin,“ bætti hann við. Sjö aðrir leikir eru á dagskrá í dag og hefjast sex þeirra klukkan 14.00. Liverpool fer í heimsókn til Norwich og Englandsmeistarar Manchester City sækja Fulham heim. City-menn hafa tapað nokkrum stigum í upphafi tímabilsins og hafa enn ekki náð að halda marki sínu hreinu til þessa. Liverpool er enn að bíða eftir fyrsta sigri tímabilsins en það sama á reyndar við um lið Norwich. „Jafntefli væri ekki nógu góð úrslit gegn Norwich. Því lengur sem við þurfum að bíða eftir fyrsta sigrinum því erfiðara verður það,“ sagði Steven Gerrard. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Tottenham mæta svo Manchester United á Old Trafford. Tottenham hefur ekki gengið vel á þessum velli síðustu ár og ekki unnið þar síðan 1989.
Mest lesið Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Körfubolti Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Körfubolti Barcelona biður UEFA um leyfi Fótbolti Getur varla gengið lengur Sport Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Enski boltinn Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Mættur aftur tuttugu árum seinna Körfubolti „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ Íslenski boltinn Dagskráin: Fyrsti leikurinn á nýja KR-vellinum, ensk félög í beinni og formúla Sport Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Sjá meira