Gylfi söng Stand By Me í Tottenham-vígslunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. september 2012 12:00 Nordic Photos / Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er í ítarlegu viðtalið hjá Henry Winter, blaðamanni Daily Telegraph, sem birt er í dag. Þar segir hann frá fyrstu vikunum sínum sem leikmaður Tottenham. Gylfi fór í gegnum sérstaklega vígslu eins og aðrir nýir leikmenn Tottenham í æfingaferð liðsins í Bandaríkjunum í sumar. „Ég þurfti að standa á stól og syngja fyrir alla strákana. Ég söng Stand By Me. Þetta var frekar vandræðalegt fyrir mig enda ekki besti söngvarinn í heimi. En strákarnir sögðu að þetta hafi verið í góðu lagi hjá mér," sagði Gylfi. „Við Íslendingar eigum Björk og Sigur Rós en ég er ekki söngvari," bætti hann við. Gylfi segir í viðtalinu að hann hafi ávallt litið upp til Eiðs Smára Guðjohnsen og Frank Lampard. En ekki Guðna Bergssonar, sem spilaði með Tottenham á sínum tíma. „Guðni var miðvörður og því leit ég ekkert sérstaklega upp til hans," sagði Gylfi og hló. „Ég ber mikla virðingu fyrir því sem hann gerði á sínum ferli. Hann er lögfræðingur og mjög klár." Gylfi segir einnig frá fjölskyldu sinni og þeim knattspyrnustjórum sem hann hefur unnið með í gegnum tíðina, meðal annars. Gylfi og félagar hans mæta Manchester United á Old Trafford klukkan 16.30 í dag en viðtalið má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira