Enski boltinn

Tap hjá Gylfa og félögum í fyrsta leik

Gylfi í eldlínunni í dag.
Gylfi í eldlínunni í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham sem varð að sætta sig við tap, 2-1, gegn Newcastle í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Gylfi hefur oft leikið betur en hann gerði í dag. Hann var tekinn af velli á 68. mínútu en í hans stað kom Rafael van der Vaart.

Markalaust var í leikhléi en Demba Ba kom Newcastle yfir snemma í síðari hálfleik. Jermain Defoe jafnaði metin fyrir Spurs á 76. mínútu.

Það mark var skammgóður vermir því Hatem Ben Arfa tryggði Newcastle sigur úr öruggri vítaspyrnu fjórum mínútum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×