Fæstir að hugsa um fótboltann Kjartan Guðmundsson skrifar 28. janúar 2012 10:30 Kristján Atli Ragnarsson.
Aldrei þessu vant eru fæstir að hugsa um sjálfan fótboltann í þessum leik. Ég hef orðið mjög var við það hjá stuðningsfólki beggja liða," segir Kristján Atli Ragnarsson, ritstjóri á Kop.is, íslenskri stuðningsvefsíðu Liverpool. Kristján Atli segir úrslit leiksins skipta minna máli en að leikurinn fari vel fram, innan vallar og utan, og að engir eftirmálar verði af honum. „Það hefur verið svo mikill hiti út af þessu máli með Suárez og Evra í fjölmiðlum og milli aðdáenda, rifrildi á netinu og ég veit ekki hvað og hvað, að margir hafa af því stórar áhyggjur að það verði mikil læti fyrir utan Anfield. Ef eitthvert hneykslismál kæmi upp, til að mynda varðandi meðferðina á Patrice Evra ef hann spilar, yrði það miklu skaðlegra fyrir Liverpool en nokkurn tíma að tapa fyrir Manchester United í þessum bikarleik. Liverpool hefur átt undir högg að sækja og mátt sæta mikilli gagnrýni út af þessu máli og margir stuðningsmenn eru logandi hræddir um að eitthvað fari illa." Kristján segist helst hafa kosið að stjórar liðanna, Kenny Dalglish og Alex Ferguson, hefðu komist að samkomulagi um að nota ekki Suárez og Evra í leikjum erkifjendanna svo stuttu eftir atburðinn. „Það er spurning hvernig Ferguson metur þetta, en mér finnst líklegt að Evra spili því hann er fyrirliði og einn af traustustu leikmönnum liðsins. Auðvitað eru stjórarnir að hugsa um að vinna fótboltaleiki og ekkert annað og vilja því hafa þessa menn til taks. Aðspurður spáir Kristján sínum mönnum 1-0 sigri í leik þar sem allt verður í járnum. „Ef einhver skorar sigurmarkið gegn Manchester United er það Steven Gerrard. Annað kemur ekki til greina."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira