Van Persie mjög ánægður með lífið í Lundúnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. janúar 2012 13:15 Robin van Persie í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Hollendingurinn Robin van Persie hefur gefið sterklega til kynna að hann hafi ekki í hyggju að fara frá Arsenal - að minnsta kosti ekki frá Lundúnum. Van Persie átti frábært ár 2011. Hann skoraði 35 deildarmörk fyrir Arsenal á árinu sem er metjöfnun hjá félaginu og einu minna en Alan Shearer gerði árið 1995 er hann setti met í ensku úrvalsdeildinni. Hann á nú átján mánuði eftir af samningi sínum við félagið og talsvert hefur verið fjallað um stöðu hans að undanförnu. Hann hefur verið orðaður við mörg stærstu félög heims en sjálfur hefur hann lítið vilja tjá sig um samningsmálin. Hann sagði þó við enska fjölmiðla að honum og fjölskyldu sinni liði mjög vel í Lundúnum. „Við elskum lífið hér í Lundúnum og ég nýt þess að fylgjast með uppvexti barna minna hér," sagði hann. „Þau eru að fá enskt uppeldi þar sem þau læra góða mannasiði og eru kurteis. Við búum á frábærum stað rétt utan borgarinnar og þar skortir okkur ekkert. Fólkið er indælt og skiptir það miklu máli." „Börnin mín eru að verða meiri Englendingar en Hollendingar. Þegar skólinn er í fríi vilja þau ekki fara til Hollands lengur." Van Persie er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Arsenal og kann hann að meta stuðninginn. „Ég gæti ekki fengið betra hrós. Ég verð að viðurkenna að mér líkar bara nokkuð vel við borða eins og „Við þurfum ekki Batman - við erum með Robin"," sagði van Persie.
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira