Di Canio tók markvörðinn af velli eftir 20 mínútur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. september 2012 13:00 Nordic Photos / Getty Images
Paolo Di Canio, stjóri enska C-deildarliðsins Swindon, vakti mikla athygli um helgina fyrir að taka markvörð sinn af velli snemma leiks gegn Preston og ekki síður þau ummæli sem hann lét falla eftir leikinn. Swindon lenti snemma 2-0 undir í leiknum og brást Di Canio við með því að taka hinn tvítuga Wes Foderingham af velli eftir 21 mínútu. Foderingham brást illa við og sparkaði í vatnsbrúsa þegar hann labbaði eftir hliðarlínunni á leið inn í búningsklefann. „Ég hef ekki séð svona hegðun hjá atvinnumanni áður. Mér var algjörlega frjálst að taka hann af velli. Hann var versti leikmaður okkar gegn Stoke í vikunni en við unnum þann leik," sagði Di Canio og átti þar við frækinn sigur Swindon í enska deildabikarnum. „Það geta allir leikmenn gert mistök en þarna sáum við hversu hrokafullur og fáfróður hann er. Hann verður að biðja alla afsökunar og það verður að koma frá hjartanu. Annars spilar hann ekki meira í mínu liði." Di Canio sagði að það væri mikilvægt að setja málið í rétt samhengi. „Þetta er tvítugur markvörður sem spilaði ekki eina mínútu í atvinnumannaliði áður en hann kom til okkar í fyrra. Við erum að tala um markvörð í League One (ensuk C-deildinni) og hann lætur svona." Þess má þó geta að fyrir viku síðan fagnaði Foderingham þeim áfanga að hafa haldið marki Swindon hreinu á heimavelli í 1000 mínútur. Hann fékk síðast á sig mark á County Ground í febrúar á þessu ári.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira