West Ham upp fyrir Arsenal eftir sigur á Queens Park Rangers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2012 18:30 Winston Reid steinrotaðist í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Nýliðar West Ham eru komnir upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á botnliði Queens Park Rangers í lokaleik sjöttu umferðarinnar á Loftus Road í kvöld. Lærisveinar Sam Allardyce í West Ham hafa nú fengið 11 stig út úr fyrstu sex leikjum sínum eða tveimur stigum meira en Arsenal sem datt fyrir vikið niður í áttunda sætið. West Ham fékk draumabyrjun þegar Matthew Jarvis skoraði strax á 3. mínútu en markið skoraði hann með skalla af stuttu færi eftir sendingu frá Kevin Nolan. Ricardo Vaz Te bætti við öðru marki á 35. mínútu eftir fyrirgjöf frá James Tomkins. Júlio César, markvörður Queens Park Rangers, leit ekki alltof vel út í báðum þessum mörkum. Winston Reid, leikmaður West Ham, fékk slæmt höfuðhögg á 21. mínútu og þurfti í kjölfarið að yfirgefa völlinn en hann lenti þarna á markverði sínum Jussi Jääskelainen. Jääskelainen átti stórleik í marki West Ham í þessum leik. Adel Taarabt kom inn á sem varamaður á 56. mínútu og var búinn að minnka muninn í 2-1 aðeins 84 sekúndum síðar með frábæru skoti. Samba Diakité kom inn á sama tíma og Taarabt en uppskera hans var allt önnur. Diakité varð að yfirgefa völlinn á 75. mínútu eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald. Queens Park Rangers lék því manni færri síðustu 15 mínútur leiksins og varð að sætta sig við tap á heimavelli. Lærisveinar Mark Hughes sitja því á botni deildarinnar enda aðeins búnir að fá tvö stig út úr fyrstu sex leikjum sínum á þessu tímabili.
Mest lesið FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Íslenski boltinn Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu Fótbolti Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Fótbolti Stór gulrót í bakgarðshlaupinu í Heiðmörk: „Alveg óskrifað blað“ Sport Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Formúla 1 Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Fótbolti Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Enski boltinn Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Fleiri fréttir Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Sjá meira