Elokobi lánaður til Forest | Sorgartíðindi fyrir Messuna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. febrúar 2012 13:22
George Elokobi hefur verið lánaður til Nottingham Forest í ensku B-deildina en hann hefur verið á mála hjá Wolves undanfarin ár. Guðmundur Benediktsson segir þetta sorgartíðindi. Elokobi hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði Wolves og segir Mick McCarthy, stjóri liðsins, gott fyrir hann að fá að spila meira. „Við erum búnir að endurheimta alla okkar varnarmenn úr meiðslum og þetta ætti að gefa George tækifæri til að spila meira," sagði McCarthy við enska fjölmiðla. Lánssamningurinn gildir til loka tímabilsins en Wolves getur þó kallað Elokobi til baka með sólarhringsfyrirvara að loknum fyrstu fjórum vikum lánstímans. Elokobi hefur verið í sérstöku uppáhaldi hjá stjórnendum Sunnudagsmessunnar á Stöð 2 Sport og honum hafa verið gerð góð skil í þættinum. Sunnudagsmessan fjallar fyrst og fremst um leiki ensku úrvalsdeildina og því mikill missir fyrir þáttinn að Elokobi skuli nú vera kominn í ensku B-deildina. „Þetta eru sorgartíðindi, ég get ekki sagt annað," sagði Guðmundur þegar Vísir náði tali af honum. „Elokobi hefur reynst mér og mínum þætti einkar vel enda afar áhugaverður leikmaður eins og fram hefur komið í þættinum." „Þetta er áfall fyrir þáttinn en líka fyrir ensku úrvalsdeildina. En Championship-deildin er að detta í lukkupottinn. Það eru mín fyrstu viðbrögð við þessum stórfréttum sem komu flatt upp á mig." Guðmundur er nú staddur í Englandi og segir að þetta sé helsta umfjöllunarefni fjölmiðla þar í landi. „Þetta er fyrst frétt í öllum miðlum. Capello þarf að víkja og það ágæta mál fellur í skuggann. Enska knattspyrnusambandið virðist ánægt með það."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Fleiri fréttir Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Sjá meira