Aron Einar og félagar komnir á Wembley Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2012 22:35 Aron Einar Gunnarsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City komust í kvöld í úrslitaleikinn í enska deildabikarnum eftir sigur á Crystal Palace eftir vítakeppni. Tom Heaton var hetja velska liðsins því hann varði tvö víti í vítakeppninni. Cardiff vann leikinn í kvöld 1-0 en Crystal Palace vann fyrri leikinn með sömu markatölu. Það var ekkert skorað í framlengingunni en Cardiff vann 3-1 sigur í vítakeppni þrátt fyrir að fyrsta vítaspyrna liðsins hafi farið forgörðum. Cardiff City mætir annaðhvort Manchester City eða Liverpool í úrslitaleiknum á Wembley en þau leika seinni undanúrslitaleik sinn á morgun. Liverpool vann fyrri leikinn 1-0. Cardiff var manni fleiri frá 78. mínútu eftir að Patrick McCarthy, fyrirliði Crystal Palace, fékk sitt annað gula spjald. McCarthy fékk bæði spjöldin fyrir að brjóta á Kenny Miller, framherja Cardiff. Þrátt fyrir stórsókn þá tókst Cardiff ekki að skora annað mark manni fleiri. Kenny Miller átti skot í stöng í fyrri hálfleik, Filip Kiss skaut í slá í framlengingunni og Aron Einar átti skalla í slána úr dauðafæri á lokasekúndunum. Aron Einar lék allan leikinn á miðju Cardiff en hann spilaði líka allar 90 mínúturnar í fyrri leiknum. Anthony Gardner tryggði Crystal Palace 1-0 sigur í fyrri leiknum í síðustu viku en hann gerði það forskot að engu með því að skora sjálfsmark á 7. mínútu. skallaði boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf Craig Conway.Vítakeppnin: 0-0 Kenny Miller, yfir 0-0 Jermaine Easter, varið (Tom Heaton) 1-0 Craig Conway, mark 1-0 Sean Scannell, varið (Tom Heaton) 2-0 Rudy Gestede, mark 2-1 Mile Jedinak, mark 3-1 Peter Whittingham, mark 3-1 Jonathan Parr, framhjá
Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Enski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Fótbolti Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Orri á skotskónum Fótbolti Fleiri fréttir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Sjá meira