City tapaði stigum gegn Stoke Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. september 2012 00:01 Crouch kemur Stoke á bragðið. Nordicphotos/Getty
Liðsmenn Manchester City urðu að sætta sig við eitt stig í heimasókn liðsins til Stoke í dag. Javier Garcia opnaði markareikning sinn fyrir City í leiknum. Gestirnir frá Manchester voru sterkari aðilinn í leiknum og líklegri til þess að taka stigin þrjú. Það voru hins vegar heimamenn sem náðu forystunni eftir tæpan stundarfjórðung. Hinn hávaxni framherji liðsins, Peter Crouch, tók þá boltann niður í teig City. Á óskiljanlegan hátt komst hann framhjá varnarmönnum City þar til hann stóð einn andspænis Joe Hart og kláraði færið vel. Gestirnir vildu fá dæmda hendi á Crouch og höfðu vafalítið eitthvað til síns máls. Englandsmeistararnir héldu áfram sókn sinni og jöfnuðu metin á 35. mínútu. Javier Garcia skallaði þá knöttinn í netið eftir aukaspyrnu og staðan 1-1 í hálfleik. City hélt boltanum stærstan hluta síðari hálfleiks en gekk erfiðlega að skapa sér opin færi. Garcia var hársbreidd frá því að skora sigurmarkið í viðbótartíma. Begovic varði skalla Spánverjans með tilþrifum. Þá bjargaði Ryan Shawcross skoti Edin Dzeko á línu undir lokin þegar Bosníumaðurinn slapp einn í gegn. Manchester City hefur átta stig í 4. sæti deildarinnar en liðið er enn ósigrað. Stoke heldur uppteknum hætti en liðið hefur gert jafntefli í öllum leikjum sínum og er um miðja deild með fjögur stig.
Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira