Bond: Endurkoma Luis Suarez hefur góð áhrif á Liverpool 6. febrúar 2012 10:30 Luis Suarez hefur lokið við að taka út 8 leikja keppnisbann. Liverpool mætir Tottenham í kvöld í mánudagsleik ensku úrvalsdeildarinnar. Getty Images / Nordic Photos
Kevin Bond, aðstoðarþjálfari hjá Tottenham, telur að endurkoma Luis Suarez í leikmannahóp Liverpool, verði til þess að stemningin á Anfield verði í hæstu hæðum þegar Liverpool mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Suarez hefur lokið átta leikja keppnisbanni sem hann fékk í desember. Leikurinn hefst kl. 20.00 í kvöld og verður hann sýndur á Stöð 2 sport 2 og einnig á HD.Staðan í deildinni: Enska knattspyrnusambandið úrskurðaði Suarez í átta leikja bann þar sem hann fundinn sekur um að hafa farið yfir strikið með niðrandi orðum um litarhátt Patrice Evra í leik gegn Manchester United í október á s.l. ári. „Stuðningsmenn Liverpool verða án efa háværir þegar hann verður kynntur til leiks á ný. Suarez er frábær leikmaður og það er mikill styrkur fyrir Liverpool að fá hann aftur. Liðið hefur unnið þrjá góða sigra án hans," sagði Bond en hann hefur fengið aðeins stærra hlutverk á undanförnum vikum þar sem að Harry Redknapp knattspyrnustjóri liðsins hefur verið upptekinn í réttarsalnum vegna rannsóknar á meintum skattsvikum hans. Liverpool er á góðri siglingu eftir tvo sigurleiki í deildarkeppninni gegn Wolves og Newcastle. Liðið er komið í úrslit deildabikarkeppninnar og Manchester United féll úr keppni gegn Liverpool í bikarkeppninni. Tottenham lagði Liverpool á Andield, 2-0, þegar liðin mættust í deildinni á síðasta tímabili. Louis Saha gæti leikið í fyrsta sinn með Totteham eftir að franski framherjinn var keyptur frá Everton í janúar. Jermain Defoe, Rafael van der Vaart og Emmanuel Adebayor hafa allir átt við meiðsli að stríða í aðdraganda leiksins.
Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Glódís framlengir samninginn við Bayern Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Sjá meira