Sky Sports: Liverpool kaupir ekki fleiri leikmenn í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. ágúst 2012 19:53 Brendan Rodgers, stjóri Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Samkvæmt heimildum Sky Sports eiga forráðamenn Liverpool ekki von á því að kaupa fleiri leikmenn til félagsins áður en lokað verður fyrir félagaskipti í kvöld. Liverpool hefur verið að eltast við Clint Dempsey lengi vel og gerði tilboð í hann í dag. Það var sagt vera upp á fjórar milljónir punda en Fulham vildi fá sjö milljónir. Liverpool var einnig sagt reiðubúið að láta Jordan Henderson eða Charlie Adam í skiptum en hvorugur hafði áhuga á því. Adam samdi svo við Stoke í dag. Fulham tók boði Aston Villa í Dempsey fyrr í dag en kappinn hafði ekki áhuga á að fara þangað. Dempsey var einnig orðaður við Tottenham en ekki hafa borist frekari fregnir af því. Liverpool hefur fengið fimm leikmenn til sín í sumar, þar af einn átján ára gutta í varaliðið. Hinir eru Fabio Borini, Joe Allen, Oussama Assaidi og Nuri Sahin sem kom sem lánsmaður frá Real Madrid. Átta leikmenn aðalliðsins fóru frá Liverpool í sumar. Þeir eru Fabio Aurelio, Dirk Kuyt, Maxi Rodriguez, Alberto Aquilani, Craig Bellamy, Charlie Adam og þeir Andy Carroll og Jay Spearing sem voru lánaðir til annarra félaga í Englandi. Lokað verður fyrir félagaskipti klukkan 22 að íslenskum tíma í kvöld.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira