Stjóri Swansea: Gylfi smellpassar í liðið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. janúar 2012 15:30 Gylfi Þór eltir Aaron Ramsey í sigurleik Swansea á Arsenal fyrir viku þegar Hafnfirðingurinn lagði upp sigurmarkið. Nordic Photos / Getty Images
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea, er hæstánægður með frammistöðu Hafnfirðingsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Gylfi Þór var í fyrsta sinn í byrjunarliði Swansea þegar liðið tapaði 2-0 gegn Sunderland og stóð að margra mati upp úr í liði sínu. „Gylfi hefur verið stórkostlegur. Ég þekki vel til hans. Hann er að fóta sig og að vinna í hraðanum," sagði Rodgers um Íslendinginn unga við breska fjölmiðlamenn að leik loknum. „Hann hafði ekki spilað marga leiki áður en hann kom hingað. En gæði hans er auðsjánleg. Hann smellpassar í liðið," sagði Rodgers um Gylfa og liðsfélagar hans voru einnig ánægðir með frammistöðu hans. „Mér fannst Gylfi okkar besti leikmaður og hann leit vel út í sínum fyrsta byrjunarliðsleik," sagði miðvörðurinn Ashley Williams. Gylfi verður á láni hjá Swansea frá þýska liðinu Hoffenheim út leiktíðina. Hann hefur nú þegar vakið athygli fyrir frábærar sendingar sínar og skotvissu. Honum tókst þó ekki frekar en öðrum leikmönnum Swansea að koma boltanum í netið sem hefur verið vandamál hjá Svönunum á útivelli á leiktíðinni. „Við vorum mikið með boltann en það vantaði töfrana að breyta hálffæri í dauðafæri og skora," sagði Gylfi Þór við breska blaðamenn eftir leikinn. Gylfi var hógvær þegar hann var spurður út í hvernig hann hefði farið að því að aðlagast leik Swansea svo fljótt. „Það er auðvelt þegar maður hefur leikmenn á borð við Joe Allen og Leon Britton fyrir aftan sig. Þeir hafa gott auga fyrir sendingum. Með Sinclair og Dyer á kantinum er líka auðvelt að finna góða sendingarmöguleika. Það er auðveldara að ganga til liðs við lið og aðlgast fljótt með svo góða leikmenn þér við hlið," sagði Gylfi Þór.
Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Handbolti Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Fleiri fréttir Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Sjá meira