Van Persie með þrennu í fyrsta sigri Arsenal á árinu | Henry skoraði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2012 12:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Robin van Persie skoraði þrennu og Alex Oxlade-Chamberlain var með tvö mörk þegar Arsenal-liðið hrökk í gang og vann 7-1 stórsigur á Blackburn Rovers. Þetta var fyrsti sigur Arsenal á árinu 2004 en liðið var aðeins búið að ná í eitt stig úr síðustu fjórum leikjum sínum. Thierry Henry kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og skoraði sjöunda og síðasta markið. Theo Walcott átti mjög góðan dag eins og þeir Van Persie og Oxlade-Chamberlain en Walcott lagði upp þrjú mörk í leiknum. Arsenal-liðið sundurspilaði Blackburn-liðið í þessum leik og sigurinn hefði vel getað orðið enn stærri. Robin van Persie lagði upp tvö mörk auk þess að skora þrjú mörk sjálfur. Robin van Persie var búinn að koma Arsenal í 1-0 eftir aðeins 80 sekúndur eftir frábæran undirbúning frá Theo Walcott. Morten Gamst Pedersen jafnaði hálftíma síðar með glæsilegu marki beint út aukaspyrnu en Arsenal-liðið svaraði með tveimur mörkum með tveggja mínútna millibili. Robin van Persie skoraði það fyrra á 38. mínútu eftir aðra frábæra stoðsendingu frá Walcott og Van Persie lagði síðan upp þriðja markið fyrir Alex Oxlade-Chamberlain á 40. mínútu. Gaël Givet fékk síðan rauða spjaldið fyrir tveggja fóta tæklingu á Robin van Persie á 43. mínútu. Möguleikar Blackburn voru þá endanlega úr sögunni. Mikel Arteta skoraði fjórða markið á 51. mínútu í kjölfarið á hornspyrnu Van Persie en Laurent Koscielny lagði til hans boltans. Arteta mætti Blackburn þrisvar í deildinni í vetur (einu sinni með Everton) og skoraði í öllum leikjunum. Alex Oxlade-Chamberlain var ekki hættur því hann skoraði fimmta markið á 54. mínútu eftir frábæran undirbúning Theo Walcott. Robin van Persie innsiglaði þrennu sína á 61. mínútu eftir flotta sendingu Francis Coquelin og góða skiptingu hjá Oxlade-Chamberlain. Arsenal átti eftir að bæta einu marki við því Thierry Henry kom inn á sem varamaður og skoraði sjöundan markið í uppbótartíma eftir sendingu frá Robin van Persie.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira