Henry biðst afsökunar á óvönduðu orðavali Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. janúar 2012 15:30 Henry þakkar stuðniningsmönnum fyrir eftir tapið gegn Swansea. Nordic Photos / Getty Images
Thierry Henry, sóknarmaður Arsenal, hefur beðist afsökunar á að blóta stuðningsmanni að loknu 3-2 tapi gegn Swansea í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Henry, sem gekk til liðs við Arsenal á tveggja mánaða lánssamningi fyrr í mánuðinum, viðurkenndi að hafa misst stjórn á skapi sínu þegar stuðningsmaður móðgaði hann. „Ég var í uppnámi og mikið niðri fyrir á sunnudaginn, ekki aðeins vegna úrslitanna. Eftir að flautað var til leiksloka í þessum erfiða leik hvatti ég alla leikmennina til þess að þakka stuðningsmönnunum fyrir þeirra stuðning," sagði Henry sem blöskraði framkoma eins stuðningsmannsins gagnvart liðsfélögum sínum. „Ég vildi koma honum í skilning um að við þyrftum á stuðningi að halda en ekki móðgunum. Boðskapurinn var réttur en ég hefði getað komið honum á framfæri á betri veg," sagði Henry sem sagðist fyrst og fremst biðjast afsökunar á óvönduðu orðavali í garð þessa stuðningsmanns. „Skilaboðin áttu ekki að vera illgjörn eða ógnvekjandi og ég er meðvitaður um að ég hefði getað tjáð mig á betri hátt," sagði Henry sem kom inná sem varamaður í leiknum. Henry hefur hvatt stuðningsmenn Arsenal til þess að standa þétt á bak við liðið um næstu helgi þegar Manchester United sækja Lundúnarliðið heim. Arsenal situr í 5. sæti deildarinnar, 15 stigum á eftir toppliði Manchester City.
Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Fótbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Fleiri fréttir „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Sjá meira