Enski boltinn

Mancini: Mun sekta Balotelli ef þetta er rétt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mario Balotelli.
Mario Balotelli. Nordic Photos / Getty Images
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, segir að félagið muni beita refsa Mario Balotelli ef það reynist rétt að hann hafi sótt nektarstað á aðfaranótt föstudagsins.

Balotelli var í byrjunarliði City í dag og skoraði í 2-0 sigri liðsins gegn Bolton. The Sun greindi frá því í morgun að sést hafi til Balotelli yfirgefa nektarstað í Liverpool um miðja nótt.

„Mario spilaði vel. Hann fékk mörg færi og ef hann fer kannski fyrr að sofa næst þá skorara hann þrjú eða fjögur mörk," sagði Mancini í gamansömum tón.

„Ég veit ekki hvort þesssar ásakanir eru réttar. Ég heyrði fyrst af þessu í dag. Við undirbjuggum okkur fyrir leikinn með það í huga að láta Mario spila en ég mun ræða við hann á morgun."

„Honum er heimilt að vera úti til klukkan tvö á næturnar en það reynist rétt að hann hafi brotið agareglur munum við sekta hann um eins mikið og okkur leyfist."


Tengdar fréttir

Balotelli fór á nektarbúllu

Mario Balotelli er búinn að koma sér enn á ný í vandræði hjá Roberto Mancini, stjóra Manchester City. Hann sást ganga út af nektarstað snemma aðfaranótt föstudags en það var enska götublaðið The Sun sem greindi frá því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×