Gylfi náði ekki meti Eiðs Smára Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2012 07:00 Gylfi Þór Sigurðsson Mynd/Nordic Photos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City urðu að sætta sig við tap á heimavelli um helgina og frábær mánuður íslenska landsliðsmannsins endaði því á súru nótunum. Gylfa vantaði eitt mark til að jafna markamet Íslendings í einum mánuði. Eiður Smári Guðjohnsen á því enn metið einn en hann náði því þrisvar sinnum að skora fimm mörk í einum mánuði í ensku úrvalsdeildinni, fyrst í desember 2000, svo í desember ári seinna og síðan í þriðja og síðasta skiptið í janúar 2002. Eiður Smári varð fyrsti Íslendingurinn til að skora fimm mörk í sama mánuði í ensku úrvalsdeildinni þegar hann skoraði 5 mörk í 5 leikjum sínum með Chelsea í desember 2000. Eiður Smári skoraði tvö mörk í leikjum á móti Derby (4-1 sigur) og Ipswich (2-2 jafntefli) og að auki eitt mark í 3-0 sigri á Bradford. Eiður skoraði í fjórum leikjum af sjö í desember 2001. Hann hóf mánuðinn á því að skora í 3-0 sigri á Manchester United á Old Trafford og endaði hann á því að skora bæði mörkin í 2-1 útisigri á Newcastle. Eiður Smári skoraði einnig í heimasigrum á Liverpool (4-0) og Bolton (5-1) í jólamánuðinum 2001. Eiður Smári var áfram í miklu stuði í janúar 2002 og skoraði þá í öllum fjórum deildarleikjum sínum með Chelsea, samtals fimm mörk. Hann skoraði eitt mark á móti Southampton (2-4 tap), Bolton (2-2) og Leeds (2-0 sigur) og skoraði síðan tvö mörk í 5-1 sigri á West Ham á Stamford Bridge. Gylfi skoraði tvö mörk í báðum útleikjum Swansea í mars, 2-0 sigri á Wigan og 3-0 sigri á Fulham. Hann náði ekki að skora í heimaleikjunum á móti Manchester City og Everton og á enn eftir að opna markareikning sinn á Liberty Stadium í Swansea. Nú er að sjá hvort að Gylfi geti bætt við einhverjum mörkum í aprílmánuði en Swansea spilar þá alls sex leiki. Flest mörk Íslendings í einum mánuði í ensku úrvalsdeildinni:Eiður Smári Guðjohnsen Með Chelsea í desember 2000. nordicphotos/getty5 - Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea desember 2000 5 - Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea desember 2001 5 - Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea janúar 2002 4 - Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea október 2004 4 - Heiðar Helguson, Fulham, febrúar 2006 4 - Gylfi Þór Sigurðsson, Swansea mars 2012 3 - Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea mars 2001 3 - Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea janúar 2003 3 - Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea apríl 2005 3 - Heiðar Helguson, Queens Park Rangers nóvember 2011
Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjá meira