Man. City með þriggja stiga forskot eftir 3-0 sigur á Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2012 19:30 Mynd/AFP
Manchester City er komið með þriggja stiga forskot á nágranna sína í Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á Liverpool í kvöld. Manchester United getur náð þeim að stigum á morgun þegar liðið heimsækir Newcastle. Manchester City hafði hikstað aðeins undanfarið og var ekki búið að skora í tveimur síðustu leikjum sínum. City-liðið sýndi hinsvegar enn á ný styrk sinn á heimavelli þar sem liðið hefur unnið alla tíu leiki sína með markatölunni 31-4. Gareth Barry, miðjumaður Manchester City, fékk rauða spjaldið þegar tuttugu mínútur voru eftir en Liverpool tókst ekki að nýta sér það. Þetta var aðeins annað tap Liverpool-liðsins í síðustu fimmtán deildarleikjum sínum. Stewart Downing fékk dauðafæri á 9. mínútu en Joe Hart varði frá honum og aðeins rúmri mínútu síðar var Manchester City komið yfir í leiknum eftir varnarmistök hjá Liverpool. Það varð jafnfram fyrsta mark City-liðsins í 226 mínútur. City-menn unnu boltann af Dirk Kuyt fyrir framan vítateig Liverpool, David Silva kom boltanum strax til Sergio Aguero sem lét vaða á markið. Pepe Reina virtist ætla að eiga í litlum vandræðum með að verja en boltinn lak undir hann og í markið. Yaya Touré kom City-liðinu síðan í 2-0 á 33. mínútu með skalla eftir hornspyrnu frá David Silva en markið var keimlíkt því sem Vincent Kompany skoraði í fyrri leik liðanna. Gareth Barry fékk sitt annað gula spjald á 72. mínútu en Liverpool-liðið var ekki búið að vera lengi manni fleiri þegar Yaya Touré var búinn að fiska víti á Martin Skertl. James Milner skoraði af öryggi úr vítinu og kom City í 3-0. Þannig urðu lokatölurnar.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira