Chelsea kaupir þrjá bræður frá Luton Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. janúar 2012 10:15 Graham og Ray Wilkins í búningi Chelsea á 8. áratugnum. Nordic Photos / Getty Images
Chelsea hefur gengið frá kaupum á tvíburabræðrunum tólf ára Rio og Cole auk þrettán ára bróður þeirra Jay DaSilva frá Luton Town. Fari svo að leikmennirnir spili fyrir Chelsea nær kaupverðið um milljón pundum eða sem nemur um 192 milljónum íslenskra króna. „Ég vil helst ekki tala um drengina sem eina heild því þeir hafa allir einstaka hæfileika en þetta er vissulega söguleg félagsskipti að þrír bræður séu keyptir saman," sagði Gregg Broughton yfirþjálfari yngri flokka hjá Luton. „Jay hefur mikla hæfileika, þekkir leikinn inn og út og er ekki síður klár og hann er hæfileikaríkur," sagði Broughton um eldri bróðurinn. „Cole er líkamlega sterkur og líður vel með boltann á meðan Rio getur skapað hluti upp úr engu og hæfileiki hans til að framkvæma hluti á litlu svæði hafa alltaf vakið athygli," sagði Broughton um tvíburabræðurna. Bræðurnir höfðu allir verið á mála hjá Luton frá sjö ára aldri. Eftir að Luton, sem spilar í 5. efstu deild Englands, tókst ekki að komast upp um deild á síðasta tímabili báðu bræðurnir um að fá að leita sér að nýju félagi. Fróðlegt verður að sjá hvort bræðurnir komist á endanum í aðallið Chelsea. Þeir yrðu ekki fyrstu bræðurnir sem spiluðu fyrir Lundúnarliðið. Ray og Graham Wilkins spiluðu fyrir félagið á 8. áratugnum og það gerðu Ron og Allan Harris einnig á þeim sjöunda. Ensku bræðurnir Joe og Sam Tillen sem spilað hafa undanfarin ár á Íslandi voru einnig á mála hjá Chelsea á sínum tíma.
Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira